Þetta BB krem frá Dior er sem draumur einn. Ég á alltaf voðalega erfitt með að finna mér meik sem ég get notað því ég vil að það hylji og byrji ekki að glansa eftir smá tíma.
Eftir að hafa verið að nota Diorskin Nude BB kremið núna í smá tíma að þá held ég svei mér þá að ég hafi loksins fundið það sem ég var að leita að! Það hylur alveg rosalega vel, samlagast húðinni minni og fer ekki að glansa, svo sléttir það úr misfellum og inniheldur góða vörn um leið og það er svo létt og ljúft á húðinni.
BB kremið frá DIOR kemur líka í fimm litum; Light, Fair, Medium, Dark og Tan.
Ég er að nota Medium og það hentar minni húð vel því ég hef húðina mína yfirleitt aðeins brúna, fíla bara ekki að vera snjóhvít en litir eins og Light og Fair eru einnig mjög flottir og ættu að henta mörgum íslenskum konum.
Einnig er Diorskin BB kremið létt en ekki þungt og þykkt svo það hentar sérlega vel og gerir húðina unglega og fallega.
Við viljum jú allar vera sætar og fallega málaðar á sem eðlilegastan hátt.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.