Diorshow Iconic Overcurl frá Dior er maskari sem ég á alltaf til.
Ég nota brúnan (over brown) því þar sem ég er ljóshærð þá finnst mér hann búa til náttúrulegra og mýkra útlit heldur en svartur en á sama tíma nær hann að skerpa augun.
Þessi tegund gerir augun sérstaklega falleg svona dags daglega en einnig er hægt að nota hann til að ýkja og búa til meira “glamúrus lúkk” með því að fara fleiri en þrjár umferðir.
Það sem þessi maskari gerir fyrir okkur:
- Krullar svo augnhár sýnast þykk og löng
- Gerir okkur kleift að ráða hvort við viljum hversdagsleg eða dramatísk augu
- Endist lengi
- Aðgreinir augnhárin án þess að þau missi þykktina
- Klessist ekki né lekur
Maskarinn fær 4.3 af 5 í einkunn frá viðskiptavinum SEPHORA en meðal athugasemda þeirra voru:
“Sky high lashes”, AMAZING CURL !!!!!!” og “Great lashes for everyday”.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.