Þessi fíni varalitur frá GOSH endaði ofan í snyrtibuddunni minni fyrir stuttu og hefur verið notaður óspart síðan.
Sumarið er tíminn til þess að vera óhræddur við að setja á sig sterka og litríka varaliti.
Því finnst mér þessi fallega bleiki litur hentar einstaklega vel yfir sumartímann. Liturinn er úr varalitalínunni Velvet Touch Lipstick, heitir Precious og er númer 157.
Varaliturinn er vel þekjandi og helst vel á vörunum.
Professional myndin af varalitnum endurspeglar ekki nógu vel litinn, hann er bæði bleikari og skærari eins og sést á þessari annars ófókuseruðu mynd af mér með hann á vörunum.
Ég mæli hiklaust með þessum lit, sem og öðrum GOSH varalitum, enda verðið mjög gott á vörum frá þessu fína danska snyrtivörumerki.
_________________________________________________________________
Eydís Halldórsdóttir er viðskiptafræðingur að mennt. Fædd og uppalin í Eyjum, hefur verið búsett í Reykjavík síðustu ár en býr nú í Barcelona þar sem hún stundar mastersnám og nýtur lífsins. Tíska og hönnun er hennar helsta áhugamál. Eydís er tvíburi samkvæmt speki stjarnanna, fædd í maí 1990. Mail: eydishalldors@gmail.com