Elizabeth Arden hefur fyrir löngu slegið í gegn með vinsæla hunangsdropa líkamskreminu sínu en Elizabeth Arden hefur upp á svooo margt annað að bjóða…
…Til dæmis þessa silkimjúku tvennu: Green Tea Energizing bað- og sturtuhreinsirinn og Green Tea Refreshing líkamskremið.
Bæði sturtusápan og líkamskremið ilma dásamlega af ýmsum náttútulegum olíum og grænu tei sem hressir og frískar. Bað- og sturtuhreinsirinn er svo sápulaus og hreinsar vel án þess að þurrka húðina, þessi er æði í freyðibaðið.
Green Tea sturtuhreinsirinn og líkamskremið koma í hentugum 200ml túpum sem myndu sóma sig vel í jólapakkanum fyrir þessa sem á allt.
Þetta er ávísun um silkimjúka og ilmandi húð!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.