Nýlega kom ný naglalakkalína út frá OPI sem heitir Minnie Mouse collection
Línan skartar nokkrum fallegum litum í rauð/bleikum tónum ásamt dásamlegu bling bling naglalakki. Ég prufaði bleika naglalakkið sem er númer NL M56 og heitir A definite moust-have, fallega bleikt með sansereðum tónum. Það helst ótrúlega vel á nöglunum eins og reyndar öll naglalökkin frá OPI.
Ég setti tvö lög á neglurnar og það hélst á í nokkra daga svona líka skínandi fínt og fallegt.
Bleiki liturinn er mjög sumarlegur að mínu mati og hentar vel við sumardressið hvort sem maður klæðist gallabuxum og bol eða fínum kjól.
Meiriháttar sætt og kjút og algjörlega nauðsynleg viðbót í snyrtibudduna!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.