Clinique er með línu sem heitir Moisture Surge og í henni er andlitskrem sem heitir Moisture Surge Intense Skin Fortifying Hydrator. Fyrir konur með þurra húð í andliti er þetta krem alveg frábært!
Ég er sjálf með gríðarlega þurra húð í andlitinu og er búin að vera að nota kremið núna í dágóðan tíma og finn mikinn mun á húðinni minni – er alls ekki eins þurr í framan.
Kremið veitir 24 klukkustunda rakadrægni en ég ber það á mig kvölds og morgna eftir að ég hef þvegið andlitið með hreinsi. Kremið veitir einnig vörn gegn umhverfisáhrifum og eykur viðnám hennar, kremið styrkir andlitið og er þessvegna kallað Skin Fortifying Hydrator.
Frábært krem sem styrkir og veitir raka og er góð viðbót í baðhilluna! Fullkomið fyrir konur sem eru með þurra húð.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig