Ef þú spyrð mig hvaða ilmur mér finnst bestur þá myndi ég fyrst segja ilmurinn af nýföllnu regni á sumardegi og því næst ilmurinn af nýþvegnum lökum sem hafa þornað úti á snúru.
Clean Fresh Laundry nær þessum síðarnefnda ilmi – á flösku!
Nú spyrja sig eflaust einhverjir afhverju maður ætti að vilja ilma eins og hreinn þvottur?
En þetta er miklu meira en það, ferskleikinn sem næst við þurrkun í vorblæ með nýútsprungnum blómum allt í kring og hlýju sólarinnar, það er sérstaðan og þetta ilmvatn minnir á svo margt sem vekur upp góðar minningar, þvottahúsið hjá ömmu, sumarbústaðurinn við sjávarsíðuna, blóm í haga og hvítur bómullarkjóll.
Framleiðandi Clean Fresh Laundry deilir leyndarmál þessa dásamlega ilms en í honum er límóna, gras, jasmín, rósir, viður og muska.
Umbúðirnar passa fullkomlega við ilminn, sandblásið himinblátt gler og hreinar línur.
Mæli með þessum ferska en jafnframt milda ilmi fyrir allar sem vilja smá sumar í líf sitt.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.