Finnst þér varalitur of mikil fyrirhöfn og gloss festast í hárinu? Þá er þessi litli gaur eitthvað fyrir þig – Chubby Stick frá Clinique er ný snyrtivara á markaðnum sem hefur slegið í gegn.
Hér erum við að tala um frábæra vöru í skemmtilegum pakkningum sem minna í raun á vaxlit sem hægt er að teikna sætar myndir með. Sæta myndin í þessu tilfelli eru varirnar þínar sem verða dúnmjúkar og fallegar á litinn, allt eftir því hvað þú velur að fara margar umferðir með Chubby Stick.
Liturinn er frábær þegar kemur að hversdagslífinu því þú þarft varla að hafa spegil við höndina til að skella honum á, svo auðveldur er hann, nokkuð svipað og varasalvi. Grunnurinn í honum er byggður á nærandi olíum og andoxunarefnum sem hjálpa til við að næra varirnar þínar og halda þeim fallegum og kyssulegum yfir veturinn.
Þú getur valið um nokkur blæbrigði en bleiki og rauði hafa verið vinsælastir hérlendis.
*SMACK*
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=t556KujTWYw[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.