Sumarið er á næsta leiti og áður en við vitum af er allt í blóma og við komin í Nauthólsvíkina á tásunum. Sérstaklega góð leið til að fá kveðja veturinn er að umvefja sig litum og ljósi.
Nýja naglalakkið frá Chanel í litnum 539 JUNE er afskaplega fallegt og sumarlegt og fær mig til að huga að sólböðum og sumarkjólum.
Það má segja að þetta sé pastel-ferskjulitt og þar sem pastellitir eru það heitasta í sumar þá er það mjög passandi. Það er látlaust en einstaklega fallegt og fer vel við margt.
Eins og allt sem kemur frá Chanel þá er þetta góð vara. Ég setti á mig tvær umferðir til að ná fram bestu þekju en það endist vel, æðislega smart og sumarlegt á tásur og fingur. Litur sem tekið er eftir.
Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.