Coco Chanel var glæsileg dama sem setti standardinn fyrir margt sem hefur að gera með fegurð og tísku.
Ég elska nýju augnskuggana frá Chanel: Ombre Essentielle Soft Touch Eyeshadow.
Fékk litinn Tigerlily sem er appelsínugylltur tónn og hentar vel til daglegra nota eða blandaður saman við skyggingu við fínni tilefni.
Þar að auki koma 23 æðislegir litir til að velja úr. Litirnir koma í litlu, þægilegu boxi og flauelspoka sem gerir þá að þægilegri vöru til að hafa í veskinu.
Augnskuggarnir eru mjúkir og létt sanseraðir, sem gerir þá ennþá meira spennandi! Þeir festast líka vel á augnlokinu sem ég tel stóran kost.
Það er líka gaman að leika sér með fallega augnskugga með því að blanda þeim saman við vatn eða vökva sem gerir þá sterkari, og útbúa jafnvel fallegan eyeliner úr þeim…
Prófaðu einhverja af þessum frábæru litum og leiktu þér með þá!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com