Ég hef verið að nota Celluli Eraser frá Biotherm í næstum mánuð núna og er ótrúlega ánægð með þá vöru.
Celluli Eraser dregur úr myndun appelsínuhúðar en þú ferð að sjá sýnilegan árangur eftir tveggja vikna notkun.
Appelsínuhúðin minnkar sem sagt um 26% á tveimur vikum og síðan eykst árangurinn því lengur sem þú notar það. Þá fyrirbyggir gelið myndun nýrra fitufrumna út af hreina koffíninu og coralline þörungunum sem það inniheldur.
Þetta er frískandi og kælandi grænt gel sem þú berð á læri, maga, upphandleggi og rass annaðhvort á kvöldin eða morgnana. Það eru mismunandi aðferðir við að bera kremið á þessa líkamshluta.
- Læri og rass: Nuddið og klípið húðina.
- Magi: Nuddið með hnefanum.
- Upphandleggir: Nuddið vel inn í húðina.
Ég nota gelið þannig að ég skrúbba húðina einu sinni í viku og eftir hverja morgunsturtu nudda ég því á þau svæði sem að mér finnst að mættu vera stinnari. Það er stór plús hvað gelið smýgur hratt inn í húðina og ég verð að segja að ég finn að húðin styrkist/verður stinnari stuttu eftir að ég hef borið það á. Þess vegna hef ég til dæmis verið að bera það á upphandleggi áður en ég fer út á lífið.
Uppistaða Celluli Eraser eru coralline þörungar sem koma í veg fyrir myndun nýrra fitufrumna, hreint koffín sen hraðar fitubrennslu, salisýlssýra sem slípar húðina og stuðlar að minni appelsínuhúð, gingko biloba sem hefur vatnslosandi áhrif og eykur blóðflæðið og escine.
Þess má geta að coralline þörungarnir fyrir finnast í Atlantshafinu en þar vernda þeir alla lifandi þætti á koralrifjunum með því að mynda verndarhjúp.
Tekið saman þá losar Celluli Eraser um fitu í fitufrumunum, jafnar og sléttir yfirborð húðarinnar, eyðir appelsínuhúð og fyrirbyggir myndun nýrra frumna sem safna upp fitu.
Virkilega ánægð með Celluli Eraser, 5 af 5.
Fanney hefur skrifað á Pjattið frá 2012. Hún skrifar mest um andlegu hliðina og lífsstílstengd mál. Fanney er viðskiptafræðingur og starfar sem slíkur hjá Markhóli markþjálfun. Hún býr í 105 Rvk ásamt sambýlismanni sínum Óskari Arnarsyni. Fanney er með sól í fiskum en er rísandi bogmaður.