Það er ekki oft sem maður verður yfir sig hrifinn af kremi – en það kom fyrir mig þegar ég komst í kynni við Capture XP rakakremið frá Dior. Þetta frábæra krem býr yfir alveg hreint ótrúlegri lagfæringarhæfni og já – það sléttir úr hrukkum!
Ástæðan fyrir þessari einstöku virkni er afrakstur rannsókna á húðþekjustofnfrumum. Capture XP rakakremið endurvekur eigin framleiðslu húðarinnar á hýalúronsýru (hyaluronic acid) sem er framleidd í leðurhúðinni og gegnir því hlutverki að vera aðalrakagjafi húðarinnar ásamt því að halda henni þéttri, mjúkri og gefa henni fyllingu.
Þegar kremið er borið á byrjar húðin STRAX að endurnýja sig og fyllast á náttúrulegan hátt. Með tímanum magnast svo endurnýjunaráhrifin og eftir einn mánuð hafa hrukkurnar minnkað MJÖG MIKIÐ.
Ég veit þetta hljómar ótrúlega, en þér er alveg óhætt að prófa þetta. Ég sé alla vega ekki eftir því.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.