Varaglossin úr Brightening Nudes línunni frá Bobbi Brown eru frábær ein og sér eða til þess að gera varalitinn þinn ennþá meira áberandi.
Ég hef verið að nota einstaklega fallegan lit sem heitir PINK LILAC.
Einan og sér en einnig yfir bleikan varalit og ég verð að segja að þessi litur er mjög fallegur.
Það hreinlega birtir yfir andlitinu þegar glossið er kominn á, varaliturinn verður meira áberandi og varirnar virka þrýstnari sem er góður kostur. Svo er þetta gæðavara því glossið endist lengi og það er mjög gott að bera það á.
Ég mæli með því að þú kynnir þér þessa fallegu línu frá Bobbi Brown sem hentar einstaklega vel í sumar, fyrir fallega náttúrulega förðun og bjart yfirbragð.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig