Nú þegar vorið er að koma virðist bleiki liturinn poppa upp allsstaðar og það er bara alveg dásamlegt!
Bleik föt, bleikt naglalakk, bleikir skór og svo bleikt gloss í stíl..ohh gæti ekki verið betra! Bleiki glossinn sem ég er með þessa dagana heitir Kiss Kiss númer 870 og er frá Guerlain.
Hann er svo fallega bleikur. Með agnarsmáum glimmerperlum, ekki of þykkur og helst lengi á vörunum. Algjörlega nauðsynlegur til að fá smá vorfíling í förðunina.
Guerlain er þekkt fyrir fágaðar og flottar vörur og umbúðirnar utan um glossinn eru svo fallegar. Eins er burstinn sérstaklega góður. Hárin mjúk og þétt.
Auðvelt er að bera glossinn á varirnar og helst hann vel og lengi á. Mikil og góð vörn er einnig í glossinum.
Ef þú ert komin í smá vorfíling þá er þessi gloss algjörlega málið. Sjúklega sætur gloss!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.