Í vorlínu Dior, Cherie Bow er augnskuggapalletta sem er með bleika fallega liti sem henta við hvaða tækifæri sem er.
Í pallettunni eru þrír litir: Base 1 það er liturinn sem þú setur fyrst á augnlokið og í raun og veru er hægt að nota þennan base fyrir hvaða förðun sem er, bleikur og mildur.
Litur nr tvö er Soft Smoky 2, það er liturinn sem fer yfir base litinn og þú getur leikið þér svolítið með hann, hann er aðeins dekkri og meira ferskjutónaður en base liturinn.
Síðasti liturinn er Couture Smoky 3, hann er með smá glimmeri í og poppar förðunina upp, þú getur sett hann við augabrúnalínu, inn í augnkrókinn, yfir allt augnlokið eða á neðri augnháralínuna.
Pakkningin er mjög flott, dökkblá með spegli og opnast skemmtilega eins og skúffa – þú dregur efra lokið frá og þá poppar spegillinn upp.
Þessir litir eru fallegir í hversdagsförðun og henta bæði ljós og dökkhærðum konum vel. Geta einnig notast með fleiri pallettum og þá sér í lagi brúnum litum.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig