Skin Vivo frá Biotherm er fyrir allar konur yfir 30 ára sem vilja það besta fyrir húðina sína.
Ég verð víst að horfast í augu við það að ég er komin yfir þrítugt og þarf að huga að húðinni ef ég vil ekki vera hrukkótt og þreytuleg. Ég er nú búin að nota Skin vivo í nokkrar vikur og húðin mín ljómar, það er augljóst að hún er að nærast vel, er slétt og jöfn.
Skin Vivo inniheldur efni sem Biotherm hefur fengið einkaleyfi fyrir og heitir PTP (Pure Thermal Plankton), það er frumuensím sem hefur andoxandi eiginleika og þykir vera besta náttúrulega efnið gegn öldrun húðarinnar. Þar sem ég vel alltaf náttúrulegt framyfir annað þá þykir mér það sérstaklega heillandi.
Það sem gerist þegar við eldumst er að DNA húðarinnar verður fyrir skemmdum og frumugenin sem vinna gegn öldrun veikjast og endurnýja sig ekki eins hratt og áður. Öflug innihaldsefni Skin Vivo gefa frumunum nýtt líf og tvöfalda virkni þeirra og gefa með því unglegt yfirbragð.
Virkni þessarra efna hafa verið vísindalega sönnuð og þessvegna hefur Biotherm fengið einkaleyfi fyrir þessarri uppfinningu og þú getur verið viss um að kaupa vöru sem virkar!
Hér að neðan er flott myndskeið sem útskýrir vel virkni Skin Vivo:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=MBwkyngA3ng[/youtube]Vala vinnur hjá 66 Norður, er menntaður innkaupastjóri og faglegur ráðgjafi hönnuða í öllu sem snýr að viðskiptum og markaðssetningu. Hún er krabbi, fædd árið 1979 og montin mamma tveggja stráka. Býr í 101.