Ég held ég hafi aldrei lent í því að mæla ekki með Bio Therm vörum og þannig er það líka í þetta sinn.
Bio Therm Skin Ergetic dagkremið er mjög hreint krem með ferskum ávaxtailm, fullt af andoxunarefnum sem verja húðina þína en kremið er jafnframt laust við olíur og paraben.
Skin Ergetic er einnig mjög gott til að nota undir meik og verður húðin mjög falleg og frískleg ásamt því að húðin verður ekki olíukennd með kvöldinu sem gerist svo oft þegar notuð eru röng krem undir farða.
Umbúðirnar eru einnig mjög fallegar en kremið kemur í appelsínugulri krukku og þegar ég opna snyrtiskápinn minn kallar kremið á mig það er svo áberandi við hliðina á öllum hinum. Veldu mig, veldu mig! …
Þær sem kjósa náttúrulegar og paraben lausar vörur sem gefa frísklegt útlit geta vel við unað með kreminu Skin Ergetic frá Bio Therm.
Sigrún Þöll Þorsteinsdóttir (f.15 feb 1975 – d. 8 apríl 2014) bloggaði á Pjatt.is í rúmlega tvö ár.
Sigrún Þöll starfaði sem tölvunarfræðingur, var dellukona, tækjasjúk og fagurkeri af lífi og sál. Að eigin sögn fannst Sigrúnu gaman að hlaupa, hjóla, drekka kaffi, huga að heilsunni, prjóna, lesa, taka ljósmyndir, rækta garðinn sinn og fleira og fleira. Blessuð sé hennar minning. Sigrún verður ógleymanleg þeim sem kynntust þessari dásamlegu konu.