Fyrir mörgum árum skrifaði ég hér á Pjattið um reynslu mína af Penzim gelinu en skrifin höfðu þau skemmtilegu áhrif að Penzim seldist upp í nokkrum apótekum.
Á þessum árum var Penzim markaðssett sem einskonar alhliða krem fyrir alla í fjölskyldunni en að nota það sem snyrtivöru var ekki orðið alþekkt. Ástæða þess að ég hafði sérlega gaman af að fjalla um þessa vöru var sú að Bragi, sonur vinkonu ömmu minnar var vísindamaðurinn sem fann þetta upp. Og hún Rósa, mamma hans, var mér alltaf einstaklega góð.
Smelltu hér til að lesa það sem ég skrifaði um Penzim hér á Pjattið árið 2009.
„Hann Bragi borðar engan sykur! Hann segir að sykur sé bara eitur,” sagði mamma þessa dularfulla vísindamanns árið 1987. Sá vissi hvað hann söng!
Grunnurinn í Penzim er sannkallað töfraefni unnið upp úr meltingarensímum þorska og er nú selt til snyrtivöruframleiðenda um allan heim. Meðal þeirra er Sif Cosmetics sem framleiðir EGF frumuvakann úr byggi en saman virka penzim grunnurinn og innihaldsefnin frá Sif Cosmetics eins og yfirnáttúrulegir töfrar á húðina.
100% meðmæli
Nýjasta varan þeirra er 30 daga kúr sem allar miðaldra konur ættu að prófa ekki síðar en núna. Eða bara allar konur sem hafa áhuga á því að fegra húðina sína, slétta svolítið úr henni og gefa henni kraft og næringu.
BIOEFFECT 30 DAY TREATMENT er öflug 30 daga húðmeðferð með þremur mismunandi frumuvökum, EGF, IL-1a og KGF, sem eru náttúrulegir húðinni og hvetja endurnýjun hennar. Rannsóknir hafa sýnt að hrukkur minnka um 34% meðal notenda við notkun BIOEFFECT 30 DAY TREATMENT.
Ég prófaði þennan kúr og get 100% mælt með honum. Áhrifin eru sýnileg, því verður ekki neitað.
Maður einfaldlega lítur betur út í þessa 30 daga sem varan er notuð og vel á eftir.
Þannig mætti eflaust mæla með því að taka BioEffect 30 daga meðferð kannski þrisvar á ári. Það er að segja ef maður vill framlengja sætleikann. Hönnun umbúðanna utan um þessa mögnuðu dropa er líka frábær en manni líður eins og sérlegum fegrunarvísindamanni með þennan perlulita dropateljara við kinnarnar.
Jákvæð áhrif af notkun BioEffect hafa verið margsönnuð með vísindalegum hætti og Sif Cosmetics hefur hlotið fjölda verðlauna á þessu sviði. Meðal annars má lesa um það hér.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.