Hún Rannveig pjattrófa skrifaði HÉR um nýja ilmvatnslínu frá Ralph Lauren sem samanstendur af fjórum mismunandi ilmum…
…Línan heitir Big Pony! Ég var svo heppin að fá á dögunum í hendurnar einn ilm úr línunni, þennan númer fjögur (#4) sem er innblásinn af ‘stylish‘ týpunni. Hann er sætur og lyktar eins og kirsuber…namm! Sá ilmur kemur í fjólubláu 30 ml glasi og passar flott í íþróttatöskuna eða veskið.
Mér finnst rétt að taka fram að ilmvatnið ilmar vel úr glasinu en svo miklu betur þegar það er búið að úða því á húðina að mínu mati.
Ef að þú ert að leita þér að nýjum ilm má mæli ég með að kíkja á þessa nýju línu frá Ralph Lauren í næstu snyrtivöruverslun.
_____________________________________________________________________________________________
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=gBElA5ChMbo[/youtube]Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.