BB cream frá GOSH er allt í einu kremi; Farði, farðagrunnur og dagkrem, þvílík snilld! Eins er það með vörn SPF 15 sem er nauðsynlegt til að verjast aðal óvini útlitsins, útfjólubláum geislum sólarinnar.
BB kremið kemur í fimm mismunandi tónum svo auðvelt er að finna þinn rétta lit. Veldu lit sem er næstur þínum húðlit og kremið aðlagast síðan að þínum húðtón. Dregur úr fínum línum og gefur húðinni ljóma og orku!
Ég er algjörlega ástfangin af mínu kremi! Svo æðislegt að geta skellt einu kremi á sig á morgnana þegar allt er á yfirsnúning heima hjá manni og vollá… farðinn kominn á. Gæti ekki verið betra!
Gosh Cosmetics hafa þróað þetta krem frá árinu 1980 og kom það fyrst á markað í Asíu.
Það sló algjörlega í gegn og þá sérstaklega í Suður Kóreu og er oftast kallað “leyndardómur leikaranna” en fjöldinn allur af selebum í Kóreu nota kremið öllum stundum. Árið 2011 var kremið fyrst sett á Evrópumarkaðinn og búið að aðlaga það Evrópskum húðgerðum.
BB kremið frá Gosh mýkir húðina og gefur henni raka fyrir daginn, það er farðagrunnur (primer), sólarvörn og farði. Eins felur það fínar línur og vinnur gegn öldrun húðarinnar. Er hægt að óska sér einhvers fleira? Algjör fullkomnun!
Lov’it!
Mæli með því að þú skoðir þá tóna sem eru í boði en þeir eru 5 talsins, Sand, Beige, Warm beige, Chestnut og Espresso.
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.