Í fyrra varð allt vitlaust í snyrtivöruheiminum og öll helstu snyrtivörumerkin hófu að framleiða BB krem
…og það ekki að ástæðulausu.
BB kremin eru auðveld og þægileg í notkun en BB kremið frá Garnier er eitt af því besta sem ég hef prófað.
Kremið veitir húðinni raka, fallegan ljóma, sólarvörn SPV20, hylur misfellur/bólur og jafnar húðlit þinn…allt í einu og sama kreminu!
BB kremið frá Garnier var valið vinsælast kremið í Ástralíu og er ég þeim sammála, það er ótrúlega gott. Einnig gefa pjatrófurnar Rannveig og Guðný Hrönn þessu kremi sín best meðmæli Hér og Hér en þær hafa einnig prufað þetta flotta krem.
Það besta við þetta krem er hvað það það er fljótlegt í notkun.
Þú þarft ekki að nota rakakrem undir eða púður yfir og því sparast tími við að hafa sig til á morgnanna. Kremið helst mjög vel á og húðin ljómar allan daginn.
Það virkar best fyrir venjulega húð og þurra húð.
Eins er það á undir tvöþúsund krónum í Hagkaup, það gerist eiginlega ekki betra!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.