Hvort sem þú vilt ‘yngri’ húð, sléttara yfirborð, færri bletti, jafnari áferð eða einfaldlega fallegri húð þá ætti BB kremið að geta reynst þér vel.
Frá því að þetta krem kom á markaðinn hefur það farið sannkallaða sigurför um heiminn og hlotið margskonar virt verðlaun í ‘bjútí’ bransanum.
BB kremið eða „Blemish Balm“ er í raun primer sem vinnur á húð þinni með því að slétta samstundis úr fínum línum og hrukkum eða öðrum misfellum eins og örum eftir ‘acne’ eða bólur.
Það hefur einnig þann eiginleika að draga úr roða og mýkja yfirborð húðarinnar en mattar þar sem húðin þarf á því að halda og gefur henni því lýtalaust útlit og ver hana í leið gegn sól og öðrum skaða.
Fyrst dagkrem, svo BB krem
Hægt er að nota BB kremið eitt og sér á eftir uppáhalds dagkreminu þínu, til þess að ná þessu fallega lýtalausa útliti án farða eða nota það undir farða til að fullkomna húð þína enn frekar og farðinn helst einnig betur á.
Kremið kemur í þremur litum og ættu flestar að finna þann sem hentar best en kremið hefur jafnframt þann eiginleika að aðlaga sig þínum húðtón. Það inniheldur líka háan sólarvarnarstuðul og dugar því frábærlega í ferðalögin í sumar. Þú þarft ekki aðra vörn.
Útkoman af notkuninni er svo einstaklega áferðarfalleg og náttúruleg húð. Alveg fullkomið í sumar – og í raun allann ársins hring.
BB kremið frá Clinique fær bestu einkun frá Pjattrófunum!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.