Ole Henriksen er dýrkaður og dáður af stjörnunum í Hollywood og hver vill ekki fá að prófa sömu vörur og stórstjörnurnar sem alltaf eru svo sætar?
Ein vinsælasta varan frá þessum danska snillingi er augngel – Ultimate Lift Eye Gel og þær umfjallanir sem ég hef lesið um það eru afar misjafnar en það virðist sem margir lesi ekki leiðbeiningarnar áður en vörur eru notaðar.
Gelið á aðeins að nota á næturnar og alls ekki yfir farða, það er best að bera gelið yfir augnsvæðið þegar það er hreint og nota bara lítið magn í einu af því, alls ekki of mikið þá verður húðin of stíf. Ég mæli með þessu geli fyrir þær sem eru mikið þrútnar í kringum augun og með feita húð því að gelið veitir engan raka, heldur lyftir það og sléttir úr hrukkum og baugum.
Gelið inniheldur meðal annars gúrku en hver kannast ekki við gamla húsráðið að setja gúrku yfir þrútin augu?
Augngelið er án parabena og er lyktarlaust.
Munið að það er afar mikilvægt að lesa leiðbeiningar vel og vandlega eða kynna sér vöruna á netinu áður en hún er notuð, rétt meðferð vörunnar tryggir hámarksárangur.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig