Armani nær á ótrúlegan hátt að toppa sig í góðum ilmum, bæði fyrir kvenfólk og karlmenn.
Nú hefur merkið gefið út nýja útgáfu af Armani Code ilmvatninu fyrir karlmenn- Armani Sport Code Athlete- innblásinn af Ólympíuleikunum í sumar.
Eins og nafnið gefur til kynna þá hentar lyktin mjög vel fyrir íþróttamenn en hún er samt það góð að hún gæti virkað fyrir alla – þrátt fyrir að þeir stundi ekki íþróttir 😉
Lyktin er fersk, krydduð, með sítrusilm og vott af vatns- og jarðtónum. Hún er alls ekki of yfirgnæfandi heldur létt, góð og hentar þessvegna vel til daglegra nota.
Armani Sport Code Athlete er frábær hugmynd að gjöf handa kærustum, bræðrum, frændum og feðrum!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com