ARMANI code luna er nýjasti ilmurinn frá Armani. Ferskur, kryddaður af vanillu, appelsínu og blómum.
Dásamlega léttur og ljúfur en kynþokkafullur á sama tíma!
Armani eru þekktir fyrir góð ilmvötn enda get ég ekki sagt annað en ég var súper glöð þegar ég fékk þetta frábæra ilmvatn að gjöf (takk). Hef ég notað flest öll ilmvötnin frá Armani svo árum skiptir eða frá því að fyrsta CODE ilmvatnið kom á markað árið 2006.
Luna þýðir tungl á ítölsku (og fleiri tungumálum) og lýsir það ilmvatninu vel enda dularfullt, þokkafullt og seiðandi eins og tunglið.
Leyndarmálið á bak við ilminn er blómið Mirabilis sem blómstrar aðeins að nóttu til, en það er líka þekkt sem Fleur de Lune, blóm tunglsins. Blandað með appelsínum og vanillu.
LA LUNA er algjörlega dásamlegur ilmur sem þú verður ekki með vonbrigðum með. Mæli sterklega með honum! Yndislegur, kynþokkafullur ilmur fyrir alvöru konur!
Guðrún J. Halldórsdóttir er innanhúss- og húsgagnahönnuður. Sporðdreki og Tígur takk.