Nýlega gaf Cacharel út nýjan Amor Amor sumarilm sem heitir einmitt Summer…
…Ilmurinn er ótrúlega ferskur og hentar þessvegna vel þeim sem vilja ekki of kryddaða ilmi. Hann er léttur, þægilegur en alls ekki súr og lætur manni ekki líða allan daginn eins og maður sé að drukkna í ilmvatni, sem mér finnst stór kostur.
Amor Amor Summer samanstendur af viðtartónum, sítrus og ávaxtatónum, en svo inniheldur kjarnir rósir og appelsínutóna. Umbúðirnar eru fallegar, appelsínurauðgular og í klassísku handhægu glasi rétt eins og upprunalegi Amor Amor ilmurinn.
Ég mæli með því að kaupa sér eitt svona sumarilmvatn til að hafa í töskunni í góða veðrinu. Svo má ekki gleyma því að ilmurinn er á sérstaklega góðu verði og seldur um land allt!
Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir er förðunarfræðingur og útskrifaðist með hæstu einkunn úr MOOD Make Up School með áherslu á tísku- sjónvarps- og ljósmyndaförðun og tók Airbrush námskeið í sama skóla. Hún er sjálfstætt starfandi og tekur að sér hin ýmsu verkefni, allt frá einstaklings- og brúðarförðunum upp í tímarit og auglýsingar. Einnig vinnur hún fyrir Bobbi Brown á Íslandi sem sölustjóri.
— Vantar þig förðun og/eða persónulega förðunarráðgjöf? Hafðu samband á gunnhildur@gb-makeup.com