Það er fátt betra en að dekra við sjálfa sig af og til og er Visible difference, andlitsmaskinn frá Elizabeth Arden frábær í það verkefni!
Nýlega eignaðist ég þennan æðislega maska og hef ég verið að nota hann reglulega síðan.
Ég fann mun strax eftir fyrsta skiptið, mér fannst húðin á mér verða svo endurnærð. Einnig fannst mér húðin á mér ljóma svo mikið strax eftir að ég notaði hann og það er sannarlega ekki verra svona í skammdeginu.
Þessi maski er svo skemmtilegur að því leytinu til að þú setur hann á þig með spaða sem fylgir með og bíður í u.þ.b 15 mínútur og svo bara tekur þú hann af, hann fer af í heilu lagi eins og gríma.
Það er kannski pínu kúnst að setja hann á sig því að hann er dálítið klístraður fyrst á meðan að hann er að að þorna þannig að ég reyni alltaf að passa hárið vel, en hann er vel þess virði að eignast og lyktin af honum er svo góð, mér finnst vera einhverskonar mild berjalykt af honum.
Ég hef alltaf verið rosalega hrifin af vörunum frá Elizabeth Arden og þessi maski er frábær viðbót í safnið! Fullkomin jólagjöf eða glaðningur fyrir þig sjálfa.
[usr 4.5]Bjarney Vigdís er mikil áhugamanneskja um allt sem viðkemur heilsu, uppeldi, eldamennsku, tísku, förðun, handavinnu, fegrun heimilisins og öðru pjatti. Hún er menntaður förðunarfræðingur og er jafnframt framúrskarandi húsfreyja sem heldur einnig úti sinu eigin bloggi. Hún býr á vesturlandi í litlum bæ ásamt manni sínum og 6 börnum.