Even better kökufarðinn kom til landsins fyrir skemmstu en hefur fengið mjög góðar móttökur þar sem hann er kominn á markað.
Þetta er mjúkur og yndislega þægilegur púðurfarði, sem endist ótrúlega lengi og færir húð þinni þegar í stað fallega matta áferð og jafnar út allan mislit í andlitnu.
Even Better farðinn er með þeim bestu á markaðnum og kökufarðinn er kærkomin viðbót við Even Better línuna.
Oft verður áferð af kökufarða svolítið þykk og mikil en það er alls ekki tilfellið hér. Hann er léttur og góður á húðinni og hylur gersamlega öll lýti um leið og áferðin er bæði falleg og ljómandi. Það besta er svo hvað hann endist lengi á en þú getur verið með hann í nokkra tíma án þess að áhrifin dvíni.
Þetta er kærkomin viðbót fyrir þær sem eru hrifnar af Clinique farðanum og um að gera að kanna hann þegar þú kíkir næst í snyrtivöruverslun.
Mér finnst þetta mjög góður farði og get fyllilega mælt með honum fyrir þær sem kunna vel að meta þessa gerð af farða.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.