Raunveruleikastjarnan Snooki sem margir kannast við úr Jersey Shore eignaðist son í ágúst í fyrra og daman lýsir því yfir að brjóstin sín séu ekki heillandi eftir meðgöngu og brjóstagjöf.
Snooki var í viðtali í þættinum “Bethenny” þar sem hún sagði að brjóstin sín væru gersamlega viðbjóðsleg, þau héngu bara og urðu svakalega stór þegar hún varð ólétt en það sæist ekki dags daglega því hún væri alltaf í góðum brjóstahaldara. “En þegar brjóstin leika lausum hala þá hanga þau bara og eru ekki fögur sjón!”
Snooki er komin í hörkuform eftir að hún átti son sinn og fer reglulega í ræktina með unnustanum. Snooki sagði einnig: ” Ég er að íhuga að fara í brjóstaaðgerð, mig langar að hafa sjálfsöryggi og falleg brjóst en þannig líður mér ekki núna”.
Snooki sagði einnig að hún væri reyndar alveg hrikalega hrædd við lýtaaðgerðir og hefur aldrei farið í slíka en vilji samt sem áður að lokum fara og láta laga brjóstin sín til að fá þau til að líta út eins og áður en hún átti barn.
Þetta er eflaust vandamál sem margar konur glíma við eftir barneignir. Sumar konur “tæmast” hreinlega. Hvað finnst þér, er í lagi að láta laga brjóstin eftir brjóstagjöf eða á maður bara að sætta sig við “tepokana”?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig