Á Íslandi höfum við mikið af fallegum fyrirsætum og Brynja Jónbjarnardóttir er ein þeirra.
Brynja, sem er 15 ára, hefur sést mikið í tískuheiminum uppá síðkastið. Hún hefur ótrúlega hæfileika þrátt fyrir ungan aldur og fegurðin geislar af henni. Brynja er eitt flottasta módel sem ég hef séð í langan tíma.
Mikið af myndunum í möppunni hennar Brynju eru teknar af annarri ungri stelpu sem er aðeins 17 ára – Katrín Braga. Katrín er ekki minna hæfileikarík en vinkona hennar Brynja þó það sé aðeins á öðru sviði. Myndirnar hennar eru ótrúlega flottar. Ég er viss um að þær eiga báðar framtíðina fyrir sér og það verður gaman að sjá hvar þær standa eftir nokkur ár.
Brynja sat nýlega á myndum fyrir Royal Extreme – sem er æðislegt nýtt fatamerki. Ég er alveg ástfangin af sokkunum sem þau eru að gera, sokkar með fléttum og kögri! Algjört æði! Fleiri myndir HÉR
Hot hot hot!
og athugið að allar myndir hér fyrir neðan eru eftir Katrínu Braga. (nema Royal Extreme myndin)
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.