Ethel Grange heitin vakti mikla athygli eftir að ítalska Vouge sótti innblástur til hennar og hafði á forsíðu blaðsins hér um árið
Hún hélt í heimsmeistaratitilinn sem konan með minnsta mitti í heimi þar til árið 1998. Það var aðeins 33 sentimetrar sem var 4 sentimetrum minna ummál en hálsinn á bóndanum.
Áður en hún fór að strekkja á sér mittið með því að nota korsilett var mittisummál hennar um 55 sentimetrar, sem er eðlilegt ummál.
Dóttir hennar gaf henni kattamat
Ethel var líka með mörg ‘piercings’ á líkamanum en þetta skrifar kona sem annaðist hana á elliheimili, 80 ára gamla:
“Ég annaðist Ethel þegar hún var að um áttrætt og þjökuð af minnisleysi. Hún hafði verið tekin af heimili dóttur sinnar, en dóttir hennar hafði aðeins gefið henni kattamat að borða. Þó að Ethel hafi verið orðin áttatíu ára var hún enn með örmjótt mitti meðan aðrir hlutar líkamans virtust eðlilegir. Bringan var þó sérkennilega löguð. Hún var með göt í eyrum og geirvörtum og líka á fleiri stöðum. Á þessum árum var ég aðeins 23 ára og hafði aldrei heyrt um slíkar gatanir. Hvað þá séð þær,” sagði stúlkan.
“Við þurftum að fylgjast náið með dóttur hennar á heimsóknartíma því hún kom alltaf með kattamat, eða ketti, til mömmu sinnar. Það var auðvelt að átta sig á því hvenær hún hafði gefið móður sinni kattamat því Ethel þurfti alltaf að kasta upp eftir heimsóknina. Á endanum var dóttir hennar svipt sjálfræði.”
Eftir að eiginmaður Ethel lést, (William hét hann), hélt hún áfram að ganga í þessum hrikalegu korsilettum sínum en William hafði haldið sérstakar dag og ljósmyndabækur þar sem hann fjallaði um múnderingarnar og límdi inn myndir af frúnni. Frekar óhuganarlegt par. Og já bara óhugnarleg fjölskylda.
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.