Hæ ég heiti Stella og ég er skófíkill – ég vista allar myndir af skóm sem ég sé á netinu ef þeir heilla mig á einhvern hátt.
Hvort sem þeir eru fallegir, ógeðslega ljótir (svo ljótir að þeir nánast verða fallegir), furðulegir eða bara hreint listaverk – vista ég myndina. Held ég sé með um 3000 myndir af skóm í tölvunni minni. Aha 🙂
Lady Gaga er þekkt fyrir að ganga um í ótrúlegum skóm: Hér eru nokkur pör sem gætu leynst í skápnum hennar.
Man því miður ekkert hvaðan myndirnar eru.
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.