Úff hvað Solestruck vefverslunin er hættuleg fyrir alla langt leidda skófíkla, þau hjá Solestruck vilja reyndar meina að þau séu einfaldlega með lyfið við skófíkn: ‘Like a medical clinic for your shoe addiction’.
Solestruck hefur upp á mörg flottustu merkin að bjóða svo sem Jeffrey Campbell, Sam Edelman, Cheap Monday, Dolce Vita og Senso…og já þau senda til Íslands ;).
Smelltu á myndirnar fyrir neðan til að sjá eitthvað af nýjasta namminu úr vefversluninni:
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.