Ég held að það sé óhætt að segja að Jeffrey Campbell sé ókrýndur skó-KONUNGUR tískuheimsins í dag!
Skórnir hans hafa alltaf verið svo ólíkir öllum öðrum, eða þangað til eftirlíkingarnar fóru að birtast. Nú herma allir eftir Jeffrey. Ég elska hvað honum tekst alltaf að koma með nýjar hugmyndir og útfærir skóna svo skemmtilega í öllum regnbogans litum.
Nýjasta viðbót hans heitir Night Walk og þeir eru SJÚKIR. Ég get ekki ímyndað mér hvernig er að ganga í þessu. Hlýtur að vera frekar erfitt.. úff.. en fallegir eru þeir! Þeir koma í nokkrum litum og fást HÉR. Þessir með glimmerinu eru uppseldir STRAX.
Nokkrar myndir af Night Walk ásamt fleiri nýjum gersemum frá Jeffrey:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.