Það bregst ekki, skórnir frá Miu Miu eru alltaf jafn frumlegir, fallegir og girnilegir! Haust 2011 skórnir eru engin undantekning en þeir eru margir þaktir glimmeri og prýddir slaufum.
Skórnir koma svo í öllum regnbogans litum, svo sem bleikum, gulum, grænum, svörtum og brúnum. Sumir skórnir úr línunni eru brjálæðislega áberandi og athyglissjúkir á meðan aðrir eru meira hefðbundnir en þeir eiga allir þennan breiða og sveigða hæl sameigininlegt. Bjútífúúúl!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.