Chau Har Lee er einn framúrskaranlegasti skóhönnuður með framtíðarsýnina í góðu lagi. Hann hefur meðal annars notast við annan efnivið en aðrir skóhönnuðir og þar kemur viður, akrýll og stál mikið við sögu. Endapunkturinn í hönnunninni er að skórnir líta út eins og fallegir skúlpturar -alger listaverk.
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.