SKINKA!
(hátónuð rödd)…OMG Ógisslega ertu brúúúunnnn…Geeðððveiiikktt
Ferðu ekki út fyrir hússins dyr án þess að mála þig?
Ertu með heillitað hár?
Áttu sléttujárn?
Ertu með sílikon eða planarðu að fara í aðgerð?
Er skylda að horfa á Americas Next Top Model?
Finnst þér Paris Hilton flott?
Hefurðu farið í trekant?
Setið fyrir í BB?
Ertu með naflalokk?
Elllskaru Friends og Sex and the City?
Drekkurðu marga lítra af Diet Coke á dag?
Reykirðu Salem Lights/Capri?
Sérðu sjálf um að lita og plokka?
Æfirðu í World Class?
Hefurðu keppt í Fitness?
Farið í fegurðarsamkeppni?
Ertu með gelneglur?
Ertu stundum með 15 glugga opna á msn?
Djammarðu til að lifa, lifirðu til að djamma eða bæði?
Eru feministar ljótir og kvenréttindi fyrir feitar konur?
Ertu fastakúnni á Sólbaðsstofunni Smart?
Ef þú svarar öllum þessum spurningum játandi þá eru 100% líkur á því að þú sért svokölluð Skinka eða Gugga, kvenhnakki, diskógella eða afsprengi klámkynslóðarinnar, sem er nýjasta heitið yfir blessaðar gærurnar.
Þróun Skinku/Guggu
Guggan er vissulega kvenhnakki með meiru. Hennar blómatími er á árunum milli 18 og 25 en eftir það dregur hún sig vanalega í hlé eða fer að einbeita sér að öðru en djammi. Stundum kemur það þó fyrir að Guggan heldur áfram í djamminu og þá bíða hennar vanalega annaðhvort fitusog, meðferð og margar misheppnaðar sambúðir eða flutningur til útlanda sem endar á því að hún kemur heim tíu árum síðar með próf í förðunarfræðum upp á vasann og sögur af poppurunum sem urðu vinir hennar.
Menntun
Þar sem karlafar og djamm eiga hug Guggunnar allann, þá hefur hún ekki mikinn tíma til að mennta sig. Viðhald brúnku, eða “tans” eins og þær kalla það, krefst útgjalda og það sama má segja um einkaþjálfunina, Diesel gallabuxurnar, gelneglurnar, strípurnar og allt það. Guggan eeeellskkarrr líka útlönd og er vanalega með plön um ferðalög einhversstaðar á listanum. Löndin sem verða fyrir valinu eru London, New York, LA og einhverjar sólarstrendur á Spáni.
Working girl
Allar Guggur dreymir um að verða annaðhvort verslunarstjórar í tískuvöruverslunum, flugfreyjur eða förðunardömur með karríer. Fæstar komast samt í þessi störf þar sem þau eru náttúrlega ekki á hverju strái. Þá láta þær sér duga önnur djobb sem borga vel og eru tiltölulega auðveld. Guggur vinna til dæmis aldrei á elliheimilum eða leikskólum. Djísuss nei oj, skeina rassa!! Frekar vinna þær á síma einhversstaðar, í þjónustuveri, hjá tryggingarfyrirtæki eða aðra hreinlega vinnur sem býður upp á að hægt sé að snyrta gelneglurnar á meðan.
Faðernismál
Margar Guggur eru einstæðar mæður. Þá gera þær sitt besta til að sinna barninu en yfirleitt er það samt ansi mikið fyrir. Ef pabbinn er búinn að viðurkenna faðernið má koma því fyrir hjá honum, eða ömmu og afa eða öðrum ættingjum. Guggur borga ekki fyrir pössun af því þær eiga ekki fyrir henni. Gelneglur kosta.
Uppeldisaðferðir Guggunnar eru grundvallaðar á sjónvarpi, tölvuleikjum og pasta með tómatsósu. Svo lengi sem unginn er ekki með of mikið vesen þá dugar það sem góð uppeldisaðferð að mati Guggunnar.
Framhaldið…
Eins og fyrr detta flestar Guggur úr Guggugírnum upp úr 25 ára. Þá fer þeim að líða meira eins og Bridget Jones en Paris Hilton. Það fer að vanta eitthvað meira í lífið og brúðkaupsþátturinn JÁ fer að tala meira til þeirra. Kannski að það sé kominn tími á að slappa aðeins af? Fókusera meira á sófann, kæró og kósí kvöld með kertum, kóki og kartöfluflögum. Fitna svo, grennast, fitna, grennast, verða ólétt, fitna, grennast, fara í átak, fara í Vikuna, verða fitt, giftast, hætta í ljósum, fara í skóla…
The End
Byrjendagræjur fyrir verðandi Guggu:
- Föt
Leðurstígvél
Diesel gallabuxur
Þröngur fleginn toppur
Stórt belti með semelíusteinum eða öðru skrauti
Allskonar glingur úr Kiss
Stutt þröng úlpa með loðhettu
- Smink
Brúnkukrem, brúnkukrem og aftur brúnkukrem
Meik
Gloss, gloss, gloss og meira gloss
Highlight á kinnbeinin
Smokey förðun í kringum augun
Maskari til að ná fram hnausþykkum augnahárum
- Tónlist
RogB (en ekki hvað?)
Maria Carey
Justin Timberlake
50 cent
Kiss FM
FM 95,7
…og allt sem er hægt að dilla sílóinu og rassinum við.
- Bíómyndir
Allt með Jennifer Aniston
Legally Blond
Einhver soft klámmynd á DVD
Clueless
Kill Bill (af því það er töff að segjast fíla hana)
Allar rómantískar gamanmyndir
Note Book (út af Ryan Gosling)
…að lokum Bridget Jones
- Bækur
Eh?
- Húsgögn
Kósí sófi
Glerborð
Stórt sjónvarp
Amerískt rúm
Ikea, Ikea, Ikea
- Bíll
Yaris eða Polo
- Dót
Rafknúið apparat í náttborðsskúffunni
Lappi
I-pod
Gemsi fullur af drasli
(Skrifað fyrir Orðlaus, 2004-05).
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.