Britney Spears skilur eftir hálfétinn mat undir rúminu sínu, ef marka má Life & Style.
Samkvæmt tímaritinu er Britney mikill aðdáandi Subway og McDonalds og skilur hún oft eftir hálfétna hamborgara, franskar og kökur þangað til síðar undir rúminu.
Life & Style fer oft frjálslega með staðreyndir þegar kemur að Britney Spears og svo virðist sem að það sé einmitt málið nú.
Heimildarmaður náinn söngkonunni segir hinsvegar að þessi frétt sé bæði kjánaleg og ósönn.
Garðar Örn Hinriksson fæddist sama ár og Jim Morrison og Louis Armstrong hurfu yfir móðuna miklu og getið nú. Garðar er ókrýndur slúðurkóngur Íslands en í rúm fjögur ár slúðraði hann eins og engin væri morgundagurinn á Gossip. Garðar kann þó fleira fyrir sér en að slúðra en hann er útskrifaður leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands og giftur tveggja barna faðir sem stefnir á barn númer þrjú. Hann rekur einnig vefinn enskiboltinn.is og hefur starfað sem knattspyrnudómari í efstu deildum Íslands í rúm 20 ár. Töff? Já.