Váá, skartgripahönnuðurinn Tom Binns er alltaf að verða meira og meira áberandi enda ekki skrítið.
Hann gerir alveg sjúklega flott skart og er einhvernvegin góður í öllu. Sjálf er ég hrifnust af stóru prinsessu hálsmenunum hans sem eru samt í ‘rave’ litum. Stjörnurnar elska hann líka en skartið frá Tom Binns hefur birst í ótal tímaritum og margoft á rauða dreglinum góða! Það er einhver uppreisn í þessu hjá honum og hann virðist bara gera nákvæmlega það sem hann fílar.
Love it!
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.