Leikkonan Elizabeth Taylor var ekki aðeins mikið fyrir sambönd (hún giftist sjö sinnum). Beta elskaði líka demantana sína.
Það var þó líklegast samblanda af þessu tvennu sem varð til þess að Taylor eignaðist smátt og smátt eitt flottasta skartgripasafn sem sögur fara af. Eiginmennirnir vissu af ástríðunni og voru því ósparir að gefa henni dásamlega demanta, dýrgripi og djásn, hvort sem hún átti afmæli eða langaði bara í eitthvað fallegt.
Nú eru skartgripirnir boðnir upp á vegum Christies og sumir eiga eftir að fara fyrir svimandi upphæðir enda eru þetta ákaflega fallegir munir.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.