Swarovski kristallar er þemað hjá konu að nafni Shourouk sem hannar guðdómlegt skart og aukahluti…
…Shourouk blandar saman Swarowski kristöllum við til dæmis PVC plastefni og kaðla og útkoman er æði! Shourouk er greinilega ekki hrædd við að nota liti en skartið hennar er oft mjööög litríkt enda fær hún innblástur meðal annars frá Bollywood kvikmyndum.
Og viðskiptavinir Shourouk eru ekki af verri endanum en ‘selebbar’ á borð við Lady Gaga, Jennifer Lopez og Michelle Obama hafa sést með skart frá henni.
Vægast sagt fallegt glingur hjá þessari parísardömu!
_______________________________________________________________________________
Guðný Hrönn Antonsdóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2011 með B.A í Myndlist. Árið 2012 kláraði hún svo Tísku- og auglýsingaljósmyndun í Fashion Academy Reykjavík. Hún er fædd í október 1988 og hefur ótæmandi áhuga á tísku, förðun, myndlist og shitzu hundum.