Á sjónvarpsstöðinni E! er þáttur sem heitir Fashion Police. Þar fer Joan Rivers á kostum ásamt samstjórnendum sínum þeim Giuliana Rancic, Kelly Osbourne og George Kostiopoulos.
Í þættinum gagnrýna þau og/eða hrósa fræga fólkinu og klæðaburði þeirra. Um þessar mundir er háannatíð í verðlaunaafhendingum vestanhafs og fara þau á kostum en þó sérstaklega Joan þar sem að hún er einstaklega hnyttin í svörum og kemur með ótrúlegustu frasa á núll einni.
Samlíkingarnar sem hún notar eru hreint ótrúlegar og ef þú hefur áhuga á tísku, fræga fólkinu, eða nýjustu trendunum þá mæli ég með því að þú horfir á þennan þátt -en ég vara þig við-annað hvort elskaru Joan eða hreinlega þolir hana ekki.
Þátturinn er sýndur á miðvikudagskvöldum á sjónvarpsstöðinni E!
Hér er linkur á heimasíðu þáttarins.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig