Ég horfi á mikið af stelpuþáttum og 90210 er í miklu uppáhaldi. Jafnvel þótt ég fái oft ólýsanlegan kjánahroll af þessum þáttum get ég bara ekki hætt að horfa!
Gillian Zinser leikur hina frökku Ivy í þáttunum. Mér finnst hún rosa töff týpa í þáttunum, strákaleg en samt kvenlen sem getur verið flókið að púlla…(afsakið enskusletturnar).
Ég fór svo að skoða myndir af leikkonunni sjálfri og hún sjálf er jafnvel svalari en Ivy í þáttunum.
Elska stílinn hennar, mjög persónulegur og flottur.
Svo er hún líka gullfalleg. Ég elska ljóshærðar stelpur með brún augu. Finnst það svo falleg blanda.
Nokkrar myndir af töffaranum:
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.