Lady Gaga, Miley Cyrus og Katy Perry börðust grimmt á rauða dreglinum í gær og reyndu að fanga athygli ljósmyndara og áhorfenda.
Katy Perry var í rúllukragahlébarðakjól og ákvað að láta það ekki duga heldur skellti hún upp í sig grilli og urraði fram og til baka á ljósmyndara en þetta átti að vekja athygli á lagi hennar Roar. Katy segist hafa fengið innblástur úr laginu og ákvað því að vera öskrandi hlébarði allt kvöldið, frekar furðulegt verð ég að segja!
Miley Cyrus mætti í svörtum þröngum leggins, stuttum svörtum bol og með nóg af blingi til þess að skreyta fatnaðinn, hárgreiðslan hennar var einnig sérstök en hún skartaði tveimur hársnúðum eins og Björk var oft með hér á árum áður.
Miley vakti ekki bara athygli á rauða dreglinum heldur kom frammistaða hennar um kvöldið verulega á óvart en hún kom þar fram með söngvaranum Robin Thicke og söng lagið Blurred Lines – MJÖG fáklædd og dansaði ögrandi…. svo ögrandi að slúðurheimar hafa gersamlega LOGAÐ eftir þennan flutning.
Lady Gaga var ótrúlega einföld á rauða dreglinum og það kom flestum á óvart því yfirleitt hefur hún verið með einhverskonar gjörning eða í furðulegum búningum.
Ég hugsa að einfaldleikinn hennar hafi komið flestum skemmtilega á óvart en frammistaða hennar á sviðinu á verðlaunaafhendingunni sjálfri sveik engann sem beið eftir sjokki en þar beraði Gaga bossann sinn klædd í skeljabikinítopp og g-strengsbrækur!
Það er greinilega ekki hlutastarf að reyna að vekja athygli á sér í tónlistarheiminum í dag. Hér að neðan er myndasafn af nokkrum stjörnum á rauða dreglinum í gær.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig