Þau eru sannkallað stjörnupar þau Kanye West og Kim Kardashian enda bæði svo efnuð að þau vita vart aura sinna tal.
En hvernig býr fólk sem hefur endalaust fé á milli handanna? Jú, þetta er bara nokkuð notalegt hjá þeim. Húsið keyptu þau árið 2013 og létu gera það rækilega upp en eign þessi er metin á rúman milljarð.
Húsið er í Bel-Air hverfinu í Hollywood en þar hafa Hollywood stjörnurnar búið síðustu 70 árin eða svo. Hver á fætur annari, sumar lengi og aðrar skemur.
Kotinu fylgja allskonar þægindi, meðal annars vínekrur, sundlaug og úti arin en miðað við hvað þessi hjón eru yfirleitt “flashy” þá er kannski bara hógværð yfir þessum hýbílum?
Stíllinn er kenndur við Miðjarðarhafið en okkur finnst þetta aðallega bara vera mjög amerískt. Risastórar innréttingar, stórir sófar og stór eldhús, allt stórt en á sama tíma mjög huggulegt.
Í raun er þetta óvenjulega ljóst miðað við það sem yfirleitt tíðkast á bandarískum heimilum þar sem flest herbergi eru oft teppalögð og litirnir fremur brúnir og/eða dökkir. Utandyra er gosbrunnur, sundlaug og fleira til að gera þetta kósý en í húsinu eru um fimm svefnherbergi.
Risastór og flottur sturtuklefi, þetta baðherbergi er draumur.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.