Simon Cowell er kannski orðinn svo stressaður fyrir föðurhlutverkinu að hann er farinn að láta sprauta hressilega af Bótoxi framan í sig til að fela áhyggjuhrukkurnar!
Simon mætti á frumsýningu Jaguar’s F-Type R Coupe bílsins. Andlitið á honum var frekar “fríki” ef svo má að orði komast.
Hann geiflaði sig í framan þannig að skein í skjannahvítar tennurnar og ennið hrukkaðist ekki neitt sem verður að teljast gott fyrir 54 ára gamlan mann (takk Bótox, hugsar hann örugglega).
Simon hefur viðurkennt að hafa notað Bótox en hann sagði í viðtali í apríl að hann stundi líkamsrækt, láti sprauta í sig Bótoxi og taki inn tonn af vítamíni!
Simon verður faðir í fyrsta sinn í febrúar á næsta ári og hlakkar mikið til þess að takast á við föðurhlutverkið á sextugsaldri.
Simon verður án efa óþekkjanlegur ef að hann heldur svona áfram og þyrfti að fara að slaka aðeins á Bótoxinu, smá línur í andlitinu eru líka flottar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig