Leikkonan Sharon Stone var glæsileg að vanda þegar hún var að versla á Rodeo Drive á dögunum, klædd í hvítt frá toppi til táar!
Sharon, sem lítur frekar unglega út miðað við aldur sinn, sagði í viðtali við tímaritið HELLO að hún sæi akkúrat enga ástæðu til þess að ljúga til um aldur sinn, að hennar mati á maður að reyna að vaxa með aldrinum og gera það á þokkafullan hátt, ekki alltaf reyna að vera eitthvað sem maður er ekki og alls ekki berjast á móti því að eldast. Það sé dásamlegt að eldast og eitthvað sem á að gerast með reisn en ekki tilgerð.
En hvernig fer Sharon að því að líta svona vel út? Jú að eigin sögn er hún líkamsræktarfíkill sem fær algjört kikk út úr því að mæta í ræktina, það er eitthvað við endorfínflæðið sem fær leikkonuna til að líða vel en það sem fær hana til að vera eldhress eru allskonar vatnsíþróttir. Að vera á bát er eitt það skemmtilegasta sem hægt sé að gera- sérstaklega spíttbát!
Sharon dansar einnig mikið en þegar hún mætir á hótel þá færir hún til húsgögnin, setur tónlistina í botn og dansar eins og enginn sé morgundagurinn. Þar að auki á Sharon þrjá litla stráka sem þarf að sinna og hlaupa á eftir og hún segir að það sé alveg sér líkmamsrækt út af fyrir sig.
Það er greinilegt að Sharon hefur gaman af lífinu og tilverunni! Vona svo sannarlega að ég hafi sömu orku og hún þegar ég verð komin á miðjan sextugsaldur. Kannski maður ætti að taka hana strax til fyrirmyndar og fara að dansa á stofugólfinu? Byrja núna.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig