Leikkonan Sharon Stone lítur stórkostlega út um þessar mundir. Hún segist vera sátt við sjálfa sig og tilveruna og henni hefur aldrei liðið betur en núna!
Leikkonan hefur fengið ótal mörg tilboð frá mörgum læknum sem hafa boðið henni í andlitslyftingu en Sharon þurfti að hugsa sig vel og vandlega áður en hún tók ákvörðun og þegar hún leit í spegil þá spurði hún sjálfa sig: “Hverju ætla þeir að lyfta”?
Hún ákvað því að fara ekki í aðgerð og er alsæl með þá ákvörðun í dag.
Sharon segir að sér finnist hún verða fallegri með aldrinum. Kinnbeinin hennar hafa breyst eftir því sem hún hefur elst, þau hafa orðið hærri og henni líkar það vel.
Sharon segir einnig að fólk þurfi að hugsa sig vel um áður en það ákveði að fara í miklar breytingar þegar kemur að lýtaaðgerðum, auðvitað sé það sjálfsagt mál að láta laga sig ef eitthvað er að en ef ekkert amar að hver er þá tilgangurinn? Til hvers að skemma það sem er heilt og í góðu lagi fyrir?
Sharon er einnig sannfærð um að andlega hliðin spili stórt hlutverk þegar kemur að því að láta “fegra” sig.
Þú ættir alltaf að tala við sérfræðing og kafa djúpt í sálina áður en þú tekur stóra skrefið að fara í aðgerð til að breyta þér, það er nefnilega ekki víst að lýtaaðgerð lækni það sem er að innan í þér.
Sharon er sátt með lífið og tilveruna komin á þennan aldur.
Hún segir að vera fimmtug sé ekki hið nýja þrjátíu heldur sé það nýr kafli í lífi þínu, kafli sem þú getur skrifað sjálf alveg upp á nýtt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig