Sharon og Ozzy Osbourne (64) hafa ekki búið saman um hríð og nánir vinir þeirra óttast að það sé skilnaður í nánd hjá hjónunum sem hafa verið gift í 30 ár.
Hjónin eiga eitt farsælasta hjónabandið í Hollywood en þrjátíu ár er met í glysborginni. Ozzy býr í leiguvillu á meðan Sharon býr á hóteli en þau eru að gera upp húsnæði sitt í Beverly Hills um þessar mundir. Að sögn vina þeirra halda þeir að hjónabandið standi á brauðfótum og óttast að því fari að ljúka bráðlega.
Sharon og Ozzy hafa selt báðar eignir sínar í Kaliforníu og eru einnig búin að selja strandhúsið sitt á Malibu. Ozzy er á leiðinni í tónleikaferð með hljómsveitinni sinni Black Sabbath en þetta er fyrsta tónleikaferðalag þeirra í mörg ár og þeir ætla einnig að gefa út nýja plötu sem þeir hafa ekki gert síðan árið 1978.
Hjónin hafa verið mjög upptekin af sínum ferlum í sitthvoru lagi undanfarin ár og það er spurning hvort að það sé farið að taka sinn toll á hjónabandinu?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig