Söngkonan Shakira á heimsfrægan kærasta, engan annan en knattspyrnumanninn Gerard Pique og margar dömur öfunda hana af því enda fjallmyndarlegur.
Gerard er þó ansi þjakaður af óöryggi og hann vill ekki sjá það að Shakira sé að dilla bossanum framan í einhvern annan karlmann í tónlistarmyndböndum sínum. Shakira segir að það sé harðbannað og eina manneskjan sem hún má í raun og veru dillast með fyrir bóndanum sé Rihanna en myndband þeirra við lagið “Can’t Remember to Forget you” er ansi náið”.
Gerard verður heldur betur afbrýðisamur þegar Shakira er að dansa með öðrum strákum í tónlistarmyndböndunum sínum og ákvað að þetta væri bara komið gott. Engir karlmenn nema hann takk fyrir! Shakiru finnst þetta svo sem í fínu lagi og er stjórnsemin bara krúttleg að mati dívunnar.
Söngkonan er í fantaformi en henni leiðist að vera í ræktinni og lyfta lóðum. Hún elskar þó að spila tennis og segir að það sé gríðarleg einbeiting fólgin í því að horfa á þennan litla gula bolta skjótast fram og aftur. Það sé einnig ákveðin þerapía þar sem þú einbeitir þér svo mikið en getir samt sem áður hreinsað hugann og fengið útrás fyrir allt það sem þú hefur tekið inná þig, – sum sé losað um reiðina!
Vinnan og fjölskyldulífið togast vissulega á en Gerard er mikið á ferðalögum vegna sinnar vinnu og Shakiru finnst hún oft þurfa að hleypa listamanninum í sér út í stað þess að vera heima með fjölskyldunni. Hún reynir þó eftir bestu getu að sameina þetta tvennt.
Obbosí, er Gerard hrikalega afbrýðisamur eða bara skynsamur kærasti, hmm? Hvað myndir þú gera?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig